Heilbrigðisnefnd - Fundur nr. 177

Heilbrigðisnefnd

Árið 2026, fimmtudaginn 15. október kl. 10:05, var haldinn 177. fundur heilbrigðisnefndar Reykjavíkur. Margrét Rós Sigurjónsdóttir, Friðjón R. Friðjónsson, Kristín K. Waage Kolbeinsdóttir og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Tómas G. Gíslason, Guðjón Ingi Eggertsson, Helgi Guðjónsson, Óskar Ísfeld Sigurðsson og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Jóhanna Kristrún Birgisdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning um málefni Reykjavíkurflugvallar.

    -    Kl. 10:08 tekur Daníel Hjörvar Guðmundsson sæti á fundinum.
    -    Kl. 10:11 tekur Ólafur Jónsson sæti á fundinum.

    Margrét Manda Jónsdóttir, Haukur Magnússon og Martin Jónas Swift taka sæti á fundinum undir þessum lið. HER26010001

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:

    Fulltrúi Samfylkingarinnar þakkar Hljóðmörkum fyrir góða kynningu og mikilvægt starf í þágu íbúa. Tekið er undir að draga þurfi úr óþarfa flugumferð (þyrlur, einka- og kennsluflug) í þéttbýli og að ástæða sé til að setja frekari takmarkanir á hana í nýju rekstrarleyfi Reykjavíkurflugvallar. Jafnframt þarf borgin að hafa vakandi auga með öryggismálum í tengslum við flugumferð yfir þéttbýli. Nauðsynlegt er að bæta söfnun gagna um áhrif flugumferðar, meðal annars með hávaðamælingum. Vernd íbúa gegn hávaða, mengun og ógnum við öryggi á að byggja á gögnum og málefnalegu mati. Þá ætti að skoða fýsileika þess að setja upp nýja aðstöðu fyrir þyrluflug utan byggðar til að draga úr ónæði.
     

  2. Fram fer umræða í kjölfar kynningar um málefni Reykjavíkurflugvallar. HER26010001

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Miðflokksins:

    Borgarfulltrúi Miðflokksins þakkar fyrir greinargóða kynningu. Reykjavíkurflugvöllur gegnir lykilhlutverki í samgöngum, sjúkraflugi, almannavörnum og öryggi landsmanna. Staðsetning hans í Vatnsmýri, í nálægð við sérhæfða heilbrigðisþjónustu og aðra mikilvæga innviði, er ómetanleg. Miðflokkurinn leggur því ríka áherslu á að flugvöllurinn verði áfram á núverandi stað og að honum verði tryggðar öruggar og fyrirsjáanlegar rekstrarforsendur til framtíðar. Mikilvægt er að viðræður um endurnýjun starfsleyfisins leiði til sanngjarnrar og farsællar niðurstöðu. Skilmálar leyfisins þurfa að tryggja óskerta starfsemi og öryggishlutverk flugvallarins, án óþarflega íþyngjandi kvaða, en jafnframt taka eðlilegt tillit til hagsmuna, heilsu og lífsgæða borgarbúa. Leita skal raunhæfra lausna og mótvægisaðgerða í góðu samstarfi þannig að hagsmunir flugvallarins, borgarbúa og landsmanna allra fari saman.
     

  3. Lagt fram erindi Atvinnuvegaráðuneytisins, dags. 16. september 2026, ásamt kæru, dags. 2. september 2026 þar sem kærð er ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 5. júní 2026 vegna kvörtunar um meintar villandi merkingar á umbúðum Swiss Miss Milk Chocolate Flavor skyndikakódrykkjardufts. Einnig er lögð fram greinargerð Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 29. september 2026. HER26010001
     

    Fylgigögn

  4. Lagðar fram kærur nr. UUA26090021, UUA26090028, UUA2610001 og UUA2609001 um útgáfu starfsleyfis til Skotreynar, ásamt fylgigögnum. HER26010001
     

    Fylgigögn

  5. Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 7. september 2026, ásamt kæru nr. UUA2609003, dags. 3. september, þar sem kærður er dráttur á afgreiðslu kvartana vegna hávaðamengunar frá Tjarnarbíói. Einnig er lögð fram greinargerð Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 7. október 2026. HER26010001
     

    Fylgigögn

  6. Fram fer umræða um breytingar á Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur sem taka gildi um áramótin 2026/2027 þegar heilbrigðiseftirlitið á landinu færist frá sveitarfélögum til ríkisins. HER26010001
     

  7. Fram fer umræða um hópsýkingu sem varð í Borgartúni dagana 24.-28. september sl. HER26010001
     

  8. Fram fer umræða um haustfund Félags heilbrigðisfulltrúa á Íslandi (FHU) og Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi (SHÍ) á Ísafirði sem fram fór dagana 24. og 25. september sl. HER26010001
     

  9. Lögð fram umsagnarbeiðni umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa dags. 14. september 2026 um rýni á núverandi ástandi eftirfarandi lóða; Laugavegur 164-166, Grensásvegur 9 og Lauganesvegur 91. Einnig er lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 21. september 2026. HER26010001
     

    Fylgigögn

  10. Lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 22. september 2026 um Borgarspítalareit, Geðsvið LSH, Fossvogi, sbr. mál nr. 995/2026 í skipulagsgátt, ásamt fylgigögnum. HER26010001
     

    Fylgigögn

  11. Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 17. september 2026, 23. september 2026, 28. september 2026, 1. október 2026 og 8. október 2026. HER26010001
     

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 11:37

Margrét Rós Sigurjónsdóttir Friðjón R. Friðjónsson

Daníel Hjörvar Guðmundsson Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir

Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir Ólafur Hvanndal Jónsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð heilbrigðisnefndar Reykjavíkur 15. október 2026