Leikskóla- og daggæsluráð
Ár 2026, 9. nóvember, var haldinn 8. fundur leikskóla- og daggæsluráðs. Fundurinn hófst í fundarherberginu Hofi á Höfðatorgi, Borgartúni 12-14 í Reykjavík kl. 13.32.
Eftirtalin voru komin til fundar í fundarherberginu Hofi: Sigrún Ásta Einarsdóttir formaður (D), Albert Guðmundsson (D), Björg Magnúsdóttir (C), Kristín K. Waage Kolbeinsdóttir (M), Margrét Rós Sigurjónsdóttir (C), Silja Sóley Birgisdóttir (J) og Skúli Helgason (S). Auk þeirra eftirtaldir áheyrnarfulltrúar: Anna Laufey Stefánsdóttir, foreldrar barna í leikskólum; Linda Ósk Sigurðardóttir, starfsfólk í leikskólum og Sigríður Dröfn Ámundadóttir, Samtök sjálfstæðra skóla. Auk þeirra eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs: Steinn Jóhannsson sviðsstjóri, Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, Ólafur Brynjar Bjarkason og Ragnheiður E. Stefánsdóttir. Eygló Traustadóttir ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 4. nóvember 2026, þar sem tilkynnt er um að Skúli Helgason taki sæti í leikskóla- og daggæsluráði í stað Steinunnar Gyðu- og Guðjónsdóttur. Jafnframt tilkynnt um að Stein Olav Romslo taki sæti sem varamaður í ráðinu í stað Bjarnveigar Birtu Bjarnadóttur. MSS26060009
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 21. október 2026, þar sem tilkynnt er um nýja samþykkt fyrir leikskóla- og daggæsluráð Reykjavíkur. MSS26080081
Kl. 13.35 tekur Guðrún Gunnarsdóttir sæti á fundinum.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning og umræða um viðverustjórnun og starfsumhverfi leikskóla. SFS26110018
Ásta Bjarnadóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar meirihlutans þakka fyrir kynninguna og þá vinnu sem unnin hefur verið til að bæta starfsumhverfi leikskóla og vinna markvisst að því að lækka veikindahlutfall hjá starfsfólki borgarinnar. Meirihlutinn leggur áherslu á að ná marktækri lækkun á veikindahlutfalli starfsfólks borgarinnar. Góðar starfsaðstæður, markviss móttaka nýliða og öflugur stuðningur við stjórnendur eru mikilvæg forsenda stöðugrar mönnunar og fyrirsjáanlegrar þjónustu við börn og fjölskyldur. Meirihlutinn leggur áherslu á að viðverustjórnun fari saman við forvarnir, heilsueflingu og aðgerðir til að draga úr álagi í starfi. Jafnframt þarf að tryggja samræmdar og áreiðanlegar upplýsingar um veikindafjarveru, starfsmannaveltu og starfsánægju svo hægt sé að meta árangur aðgerða og beina stuðningi þangað sem þörfin er mest.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Þakkað er fyrir kynningu á verkefnunum viðverustjórnun og leikskólaverkefninu um starfsumhverfi leikskóla, sem hefur verið í gangi undanfarin þrjú ár. Markmið síðarnefnda verkefnisins var að minnka álag á starfsfólk og auka starfsánægju og er ánægjulegt að sjá að það hefur skilað þeim árangri að dregið hefur úr álagi, starfsandi er betri og líðan starfsfólks sömuleiðis, samskipti og samstarf starfsfólks og stjórnenda hefur batnað. Þá hefur dregið úr skammtímafjarveru og mannekla minnkað. Verkefnið er hluti af því forgangsverkefni sviðsins og fyrri meirihluta undir stjórn Samfylkingarinnar undanfarinn áratug að bæta starfsaðstæður í leikskólum en hrint hefur verið í framkvæmd fjölmörgum umbótum til að bæta aðbúnað og starfsumhverfi leikskólanna. Brýnt er að halda því starfi áfram á þessu kjörtímabili samhliða aðgerðum sem tengjast viðveru starfsmanna, þar sem forvitnilegt verður að sjá mælingar á árangri á nýju ári.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Miðflokksins þakkar góða kynningu og telur að næsta skref þurfi að vera víðtækari greining á orsökum fjarvista, ekki eingöngu áhersla á viðverustjórnun og einstök inngrip gagnvart starfsfólki. Sérstaklega þarf að skoða tengsl veikindafjarvista við húsakost, raka- og mygluvanda í skólabyggingum, mönnun, álag, stærð barnahópa, skipulag vinnutíma og ábyrgðarskiptingu milli starfsfólks. Í kynningunni kom fram að verklag Kópavogsbæjar sé aðalfyrirmyndin. Þar náðu þau marktækri lækkun á skammtímaveikindum og var áherslan vissulega þar. Fulltrúi Miðflokksins bendir þó á að frá því að átak Kópavogsbæjar hófst í ársbyrjun 2024 þá hafa skammtímaveikindi lækkað lítillega en langtímaveikindi hækkað um svipað. Heildarveikindi fóru þar úr 9,8% frá því að átakið hófst yfir í 10,1%. Að mati fulltrúa Miðflokksins er því spurning hvort Reykjavíkurborg eigi að líta til Kópavogsbæjar í þessum efnum. Ekki liggja fyrir traust rannsóknargögn sem sýna að Bradford-kvarðinn bæti viðveru eða lækki heildarveikindahlutfall. Kvarðinn getur nýst til að greina mynstur endurtekinna skammtímafjarvista, en hann er fyrst og fremst mælitæki og getur ekki skýrt orsakir fjarvista eða komið í stað úrbóta í starfsaðstæðum, mönnun, álagi og húsnæði. Árangur verður því að meta út frá heildarveikindum og öðrum fyrirfram skilgreindum mælikvörðum.
-
Lögð fram og kynnt skýrslan Skólatengsl í leikskóla, ódags. SFS26110020
Fjóla Þorvaldsdóttir og Ingunn Ásta Sigmundsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar meirihlutans þakka fyrir góða vinnu skóla- og frístundasviðs við að kortleggja skólatengsl og skólasókn. Við leggjum áherslu á samræmd og tímanleg viðbrögð þegar áhyggjur vakna af skólasókn barns. Skýr ábyrgð, gott samstarf við foreldra og greiður aðgangur að ráðgjöf og stuðningi eru forsenda þess að brugðist sé við þörfum barnsins án óþarfa tafa. Viðmiðin þurfa að taka mið af ólíku hlutverki leik- og grunnskóla og aðstæðum hvers barns. Meirihlutinn leggur áherslu á að reynsla af innleiðingunni verði nýtt til að bæta verklag og tryggja samfellu í stuðningi þegar börn flytjast milli skólastiga.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Þakkað er fyrir skýrslu starfshóps um skólatengsl í leikskóla sem opnar á þarfa umræðu til samræmis við greiningar sem unnar hafa verið á skólaforðun nemenda í grunnskólum. Í skýrslunni er bent á að þó leikskólasókn sé ekki lögbundin skylda þá er leikskólinn fyrsta skólastigið og regluleg mæting er forsenda þess að barn byggi upp færni í félagslegum samskiptum, tilfinningagreind, seiglu og sjálfstraust sem eru mikilvægar forsendur menntunar barna. Í kynningunni kom fram að um 1% barna sem eru með skráða vist í leikskólum mæti ekki í leikskólann að jafnaði og að þær niðurstöður séu sambærilegar við stöðuna í leikskólum í Kópavogi. Höfundar skýrslunnar veita fjölmörg góð ráð til foreldra og starfsfólks um hvernig megi styrkja skólatengsl barna í leikskólum. Framundan á næstu vikum er svo útgáfa uppfærðra viðmiða um viðbrögð við ófullnægjandi skólasókn í leik- og grunnskólum. Mikilvægt er að nota skýrsluna sem grunn til að afla heildstæðra gagna um skólasókn í leikskólum borgarinnar og setja fram formlegar tillögur til úrbóta m.a. með samtölum við foreldra, því virk leikskólaganga þar sem börn læra í gegnum leik og samskipti við bæði önnur börn og foreldra er svo sannarlega ein mikilvægasta forsendan fyrir farsælu og árangursríku námi, félagsfærni og þroska barna.
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Miðflokksins þakkar góða kynningu og fagnar því að það sé verið að efla skólatengsl strax á fyrsta skólastiginu og samræma viðmið um viðbrögð við ófullnægjandi skólasókn. Mikilvægast er að skoða gaumgæfilega ástæður að baki þess að barn upplifir skólahöfnun og bæta úr þeim.
Fylgigögn
-
Lagt fram og kynnt minnisblað sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 9. september 2026, um uppfærð viðmið um skólasókn og vinnslu skólasóknarmála í leik- og grunnskólastarfi Reykjavíkur. SFS26090072
Fjóla Þorvaldsdóttir og Ingunn Ásta Sigmundsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 29. október 2026, ásamt samstarfssamningi um réttindaskóla og -frístund UNICEF:
Lagt er til í meðfylgjandi samningsdrögum við UNICEF, vegna innleiðingar Réttindaskóla UNICEF á leikskólastigi, að leikskólarnir Jörfi, Hraunborg, Klettaborg, Dalskóli og Sæborg hefji innleiðingu og stefnt verði að viðurkenningu árið 2028.
Greinargerð fylgir.
Samþykkt. Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Miðflokksins situr hjá við afgreiðsluna. Vísað til borgarráðs. SFS26090228
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Samfylkingarinnar fagnar tillögu sviðsstjóra um að fimm borgarreknir leikskólar: Jörfi, Hraunborg, Klettaborg, Dalskóli og Sæborg verði hluti af verkefninu Réttindaskólar UNICEF á leikskólastigi og hefji undirbúning að því að verða formlegir Réttindaskólar árið 2028. Nú þegar eru 8 leikskólar viðurkenndir Réttindaleikskólar og fimm til viðbótar hafa hafið innleiðingu og fá viðurkenninguna á næsta ári. Verkefnið er afar mikilvægt, tekur mið af samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins og miðar að því að auka virðingu, vernd og innleiðingu mannréttinda. Áherslan er á þátttöku, jafnrétti og virðingu og meginmarkmið að hjálpa börnum að verða virkir, gagnrýnir og hæfir þátttakendur í nútíma samfélagi.
Fylgigögn
-
Lagt fram fundadagatal leikskóla- og daggæsluráðs fyrir árið 2027, dags. 29. október 2026. SFS26060062
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um fréttir af vettvangi leikskóla- og daggæslumála. SFS26070078
-
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Óskað er eftir upplýsingum um stöðu framkvæmda eða undirbúnings varðandi eftirtalin uppbyggingarverkefni leikskóla sem unnið hefur verið að undanfarin misseri. Óskað er eftir upplýsingum um stöðu verkefnisins, áætluð verklok og áætlaða opnun. Þá er óskað upplýsinga um hver sé áætlaður fjöldi nýrra plássa í hverju tilviki fyrir sig, hvaða umbætur verða gerðar á starfsmannaaðstöðu og eftir atvikum hvaða áform eru uppi um rekstrarform umræddra leikskóla. Þá er óskað upplýsinga um hvort hætt hafi verið við einhver eftirtalinna verkefna eða önnur uppbyggingarverkefni sem hafa verið í undirbúningi. 1. Nýr leikskóli við Rafstöðvarveg. 2. Nýr leikskóli í Fossvogsdal. 3. Nýr leikskóli við Arnarbakka. 4. Nýtt húsnæði leikskólans Ægisborgar. 5. Nýtt húsnæði leikskólans Laugasólar. 6. Nýtt húsnæði leikskólans Miðborgar. 7. Nýtt húsnæði leikskólans Sunnuáss. 8. Nýr leikskóli í Safamýri. 9. Nýr leikskóli í Völvufelli. 10. Nýr leikskóli í Vogabyggð. 11. Stækkun leikskólans Múlaborgar. 12. Stækkun eftirfarandi leikskóla með viðbótarhúsnæði: a. Vesturborg. b. Hólaborg. c. Jörfi. d. Árborg. e. Grandaborg. f. Maríuborg.
SFS26110045
-
Leikskóla- og daggæsluráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Óskað er eftir upplýsingum um sálfræðinga, talmeinafræðinga, hegðunarráðgjafa, atferlisþjálfara, þroskaþjálfa og kennsluráðgjafa hjá Reykjavíkurborg. Óskað er eftir upplýsingum um heildarfjölda starfsmanna og stöðugilda í hverri starfsstétt fyrir sig ásamt skiptingu á milli þeirra sem starfa miðlægt og þeirra sem starfa sem hluti af starfsfólki leik- eða grunnskóla. Einnig er óskað eftir upplýsingum um fjölda barna á biðlista og meðalbiðtíma eftir þjónustu frá hverri sérfræðingastöðu fyrir sig ásamt meðalmálafjölda á hvert stöðugildi sundurliðað eftir starfsheitum.
SFS26110044
Fundi slitið kl. 15.03
Sigrún Ásta Einarsdóttir Albert Guðmundsson
Björg Magnúsdóttir Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir
Margrét Rós Sigurjónsdóttir Silja Sóley Birgisdóttir
Skúli Helgason
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð leikskóla- og daggæsluráðs frá 9. nóvember 2026