Skóla- og frístundaráð - Fundur nr. 322

Skóla- og frístundaráð

Ár 2026, 9. nóvember, var haldinn 322. fundur skóla- og frístundaráðs. Fundurinn hófst í fundarherberginu Hofi á Höfðatorgi, Borgartúni 12-14 í Reykjavík kl. 9.46.
Eftirtalin voru komin til fundar í fundarherberginu Hofi: Bjarni Fritzson formaður (D), Hlédís Maren Guðmundsdóttir (M), Magnea Gná Jóhannsdóttir (B), Sanna Magdalena Mörtudóttir (A), Stein Olav Romslo (S) og Þorvaldur Davíð Kristjánsson (C). Auk þeirra eftirtaldir áheyrnarfulltrúar: Alma Guðmundsdóttir, Samtök sjálfstæðra skóla, Guðjóna Eygló Friðriksdóttir, skólastjórar í grunnskólum; Guðrún Elísabet Ómarsdóttir, foreldrar barna í grunnskólum; Hlynur Einarsson, stjórnendur frístundaheimila og félagsmiðstöðva; Kristín Björnsdóttir, kennarar í grunnskólum og Ragnheiður Andrésdóttir, Reykjavíkurráð ungmenna. Auk þeirra eftirtaldir starfsmenn skóla- og frístundasviðs: Steinn Jóhannsson sviðsstjóri, Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, Arndís Steinþórsdóttir, Hjörtur Ágústsson og Sigrún Sveinbjörnsdóttir. Eygló Traustadóttir ritaði fundargerð.
 

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 4. nóvember 2026, þar sem tilkynnt er að Stein Olav Romslo taki sæti í skóla- og frístundaráði í stað Skúla Helgasonar. Jafnframt er tilkynnt um að Skúli Helgason taki sæti sem varamaður í ráðinu í stað Isabel Alejandra Diaz. MSS26060016

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 21. október 2026, þar sem tilkynnt er um nýja samþykkt fyrir skóla- og frístundaráð Reykjavíkur. MSS26080081

    Kl. 9.50 tekur Friðjón R. Friðjónsson sæti á fundinum. 

    Fylgigögn

  3. Fram fer kynning og umræða um starfsemi Mixtúru, stuðning við markvissa, ábyrga og framsækna tækni í skóla- og frístundastarfi; tæki, kennslulausnir og starfsþróun. SFS26110016

    Þorbjörg St. Þorsteinsdóttir og Hildur Ásta Viggósdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar meirihlutans telja mikilvægt að Reykjavík hafi skýra heildarsýn á tækjakost og nýtingu menntatækni í skólum, með faglega kennslu og námsárangur nemenda í forgrunni. Móta þarf stefnu um nýtingu tækninnar í samráði við fagfólk og styðja við starfsþróun kennara með þjálfun og faglegum stuðningi við markvissa notkun hennar í námi og kennslu. PISA 2022 bendir til þess að hófleg notkun stafrænna tækja til náms geti stutt við námsárangur. Nemendur sem notuðu slík tæki til náms í skólanum í allt að eina klukkustund á dag fengu marktækt fleiri PISA stig í stærðfræði en þeir sem notuðu þau ekkert, að teknu tilliti til félagslegs og efnahagslegs bakgrunns nemenda og skóla. Mikilvægt er að jafna aðgengi nemenda að tækjum og vönduðum stafrænum námsgögnum. Ljóst er að fjárfestingaþörf er til staðar þegar kemur að tækjum og því er þörf á að gera áætlanir til að auka fjármagn til kaupa á námstækjum. Einnig þarf að huga að reglulegu viðhaldi, uppfærslu og endurnýjun eftir þörfum, ásamt greiðum aðgangi að tæknilegum stuðningi. Við val og nýtingu menntatækni skal leggja mat á kennslufræðilegt gildi hennar og hvernig hún getur stuðlað að bættum námsárangri. Tæknin á að vera verkfæri sem styður við faglega kennslu, nám og jöfn tækifæri nemenda.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Samfylkingarinnar þakkar fyrir áhugaverða og fræðandi kynningu og frábært starf í Mixtúru. Mikilvægt er að kjörnir fulltrúar fái innsýn í stuðning við stafræna vegferð skólanna. Reykvískir skólar vinna metnaðarfullt starf með markvissri og meðvitaðri notkun stafrænnar tækni. Á sama tíma blasir við mikill tækjaskortur í grunnskólum borgarinnar, ekki síst vegna takmarkana á símanotkun nemenda. Nú þarf meirihlutinn að tryggja fjármögnun fyrir endurnýjun námstækja hjá þjónustu- og nýsköpunarsviði í fjárhagsáætlun fyrir næsta ár.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Miðflokksins geldur varhug við ákveðnum þáttum er varða spjaldtölvuvæðingu og algengi skjánotkunar barna. Ljóst er að tæknin getur nýst vel en mikilvægt er að nálgast hana af ábyrgð. Í ljósi þess að skortur er á samræmdri stefnu og notkun tækninnar er alfarið í höndum einstaka kennara er það ábyrgðarhlutverk borgarinnar að meta árangur á raunverulegan hátt. Það er ekki nóg að meta sjálfsmatslýsingar á því hvort tæknin sé góð heldur þarf að meta námsárangur eftir notkunarleiðum. Þá liggur fyrir veruleg og kostnaðarsöm endurnýjunarþörf á tækjabúnaði. Mikilvægt er að gæta jafnræðis og tryggja jafnt aðgengi. Hins vegar má spyrja hvort yngstu bekkirnir hafi sömu þörf á spjaldtölvum og eldri stig. Jafnframt er vert að kanna hvernig börn fara með búnað í eigu skólans og hvort þau upplifi sömu ábyrgðartilfinningu og ef búnaðurinn væri þeirra eigin.

    Skóla- og frístundaráðsfulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þakkað er fyrir kynningu frá Mixtúru sköpunar- og tækniveri skóla- og frístundasviðs sem styður við stafræna tækni í námi, kennslu, leik og störfum. Mikilvægt er að fyrirbyggja að aðgengi nemenda að tækjabúnaði rofni og að nýtt tæki taki við þegar tæki úreldast eða skemmast. Mæta þarf tækjaþörfinni í skólum þannig að tækjaskortur leiði ekki til ójafns aðgengis en dæmi eru um að nýir nemendur hafi ekki fengið námstæki og að skólar hafi jafnvel þurft að endurnýta gömul og skemmd tæki.

    Áheyrnarfulltrúar skólastjóra og kennara í grunnskólum leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi skólastjóra og fulltrúi kennara leggja ríka áherslu á að áfram verði staðinn vörður um góðan tækjabúnað nemenda í grunnskólum Reykjavíkur. Aðgengi að nútímalegum tæknibúnaði er mikilvæg forsenda framsækins skólastarfs, fjölbreyttra kennsluhátta og jafnræðis til náms. Stafræn tæki eru órjúfanlegur hluti af daglegu skólastarfi. Nemendur nýta þau til náms, halda utan um verkefni sín og námsframvindu og fá endurgjöf frá kennurum. Tæknin býður jafnframt upp á fjölbreytta möguleika til einstaklingsmiðunar og aðlögunar námsefnis að ólíkum þörfum nemenda. Sífellt stærri hluti námsefnis er auk þess á stafrænu formi. Mikilvægt er að tryggja fyrirsjáanlega fjármögnun og reglulega endurnýjun tækjabúnaðar þannig að allir nemendur hafi jafnt aðgengi að stafrænum námslausnum, óháð skóla eða aðstæðum. Jafnframt þarf að tryggja skólunum svigrúm til að nýta fjölbreyttar stafrænar lausnir og viðbætur sem uppfylla kröfur um öryggi og persónuvernd. Reykjavíkurborg þarf að vera í fararbroddi við að meta og innleiða öruggan og gagnlegan hugbúnað með skilvirkum hætti. Tryggja þarf að tæknilegir innviðir og aðgengi að stafrænum lausnum styðji áfram við metnaðarfullt, skapandi og framsækið skólastarf í Reykjavík.

    Kl. 10.45 víkur Hjörtur Ágústsson af fundinum.

  4. Fram fer kynning og umræða um niðurstöður úr könnun til foreldra barna í grunnskólum í mars 2026. SFS26110015

    Guðrún Mjöll Sigurðardóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Skóla- og frístundaráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Skóla- og frístundaráð þakkar fyrir greinagóða kynningu á niðurstöðum úr könnun til foreldra barna í grunnskólum borgarinnar. Það er gott að sjá að foreldrar eru almennt ánægðir með skólastarfið. Athygli vekur að jákvæð þróun er í öllum þáttum könnunarinnar. Niðurstöðurnar gefa mikilvæga innsýn í upplifun foreldra af skólastarfi og nýtast vonandi skólum borgarinnar vel í áframhaldandi þróun starfsins í bland við önnur gögn.

    Fylgigögn

  5. Lögð fram tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, dags. 3. nóvember 2026, þar sem lagt er til að viðmið um hámarksfjölda nemenda með lögheimili í Reykjavík sem heimilt er að greiða framlag vegna til Arnarskóla verði að hámarki sextán nemendur í stað ellefu ásamt því að lagðar eru til breytingar á verklagi um meðferð umsókna og framlag vegna skólavistar nemenda í Arnarskóla. Jafnframt lagt fram verklag um meðferð umsókna og framlag vegna nemenda í Arnarskóla með breytingum og gildandi verklag frá 2021 auk umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 19. október 2026.

    Greinargerð fylgir.

    Samþykkt. Vísað til borgarráðs. SFS23040076 

    Fylgigögn

  6. Lagt fram fundadagatal skóla- og frístundaráðs fyrir árið 2027, dags. 29. október 2026. SFS26060066

    Fylgigögn

  7. Fram fer umræða um fréttir af vettvangi skóla- og frístundastarfs. SFS26070077

Fundi slitið kl. 11.37

Bjarni Fritzson Friðjón R. Friðjónsson

Hlédís Maren Guðmundsdóttir Magnea Gná Jóhannsdóttir

Stein Olav Romslo Sanna Magdalena Mörtudottir

Þorvaldur Davíð Kristjánsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 9. nóvember 2026