Leggja bíl í gjaldskyld stæði
Upplýsingar um gjaldsvæði borgarinnar, verð, greiðsluleiðir, bílastæði fyrir hreyfihamlaða, gjaldsvæðismerkingar og bílahús.
Hér er hægt að greiða fyrir gjaldskyld bílastæði í borgarlandi með netgreiðslu og skrá P-kort í stæði.
Hvað kostar að leggja bílnum?
Í Reykjavík eru fjögur mismunandi gjaldsvæði og verðlagning og gjaldskyldutími mismunandi. Svæðin eru P1, P2, P3 og P4.
Fjögur mismunandi gjaldsvæði
P1
- 660 krónur á klukkustund.
- Kl. 9–20 virka daga og kl. 10–20 laugardaga og sunnudaga
- Hámarkstími er 3 klst.
P2
- 240 krónur á klukkustund.
- Kl. 9–20 virka daga og kl. 10–20 laugardaga og sunnudaga
P3
- 240 krónur á klukkustund fyrstu tvær klukkustundirnar. Eftir það 70 krónur
- Kl. 9–18 virka daga
P4
- 240 krónur á klukkustund
- Kl. 8–16 virka daga
Fólk með stæðiskort hreyfihamlaðra (P-kort) greiðir ekki fyrir gjaldskyld bílastæði.
Ekki þarf að greiða fyrir stæði í merktu rafhleðslustæði ef bíll er í hleðslu.
Ekki er gjaldskylda á eftirfarandi dögum:
Nýársdagur, skírdagur, föstudagurinn langi, páskadagur, annar í páskum, sumardagurinn fyrsti, 1. maí, uppstigningardagur, hvítasunnudagur, annar í hvítasunnu, 17. júní, frídagur verslunarmanna, jóladagur, annar í jólum.
Bílastæðakort fyrir íbúa eða rekstraraðila
Íbúakort er bílastæðakort fyrir fólk sem á heima á íbúakortasvæðum.
- 1.500 krónur á mánuði fyrir bifreiðar sem ganga eingöngu fyrir rafmagni eða vetni.
- 3.000 krónur á mánuði fyrir aðrar bifreiðar.
- Reglur um bílastæðakort fyrir íbúa (íbúakort)
Bílastæðakort fyrir rekstraraðila er fyrir aðila sem stunda rekstur skv. atvinnugreinaflokkun ÍSAT nr 47 eða 56 að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.
- Rekstraraðilakort kostar 20.000 krónur á mánuði
- Reglur um bílastæðakort fyrir rekstraraðila (rekstraraðilakort)
Bílastæðakort fyrir deilibílaleigur
Reglurnar gilda fyrir deilibílaleigur sem starfrækja einnar ferðar deilibíla.
- Deilibílakort kostar 1.500 krónur á mánuði
- Reglur um bílastæðakort fyrir deilibíla
Greiðsluleiðir
Þegar verið er að leggja er hægt að greiða fyrir stæðið með því að:
- Borga í stöðumæli með mynt, korti eða síma.
- Borga með rafrænum greiðsluleiðum (öppum) í síma.
- Borga á vefnum (netgreiðsla)
Greiðsluöpp
Bílastæðasjóður hvetur viðskiptavini að kynna sér vel notkunarskilmála greiðsluappa við upphaf notkunar. Þú getur sótt greiðsluöppin gjaldfrjálst í App Store eða Google Play.
EasyPark
Þú getur notað þjónustuna á öllum gjaldskyldum svæðum á vegum Reykjavíkurborgar með því að skrá bíl í stæði og velja rétt gjaldsvæði þegar bílnum er lagt og skrá úr stæði þegar ekið er burt.
EasyPark virkar einnig í bílahúsum Reykjavíkur.
Parka
Þú getur notað þjónustuna á öllum gjaldskyldum svæðum á vegum Reykjavíkurborgar með því að skrá bíl í stæði og velja rétt gjaldsvæði þegar bílnum er lagt og skrá úr stæði þegar ekið er burt.
Parka virkar einnig í bílahúsum Reykjavíkur.
SíminnPay
Þú getur notað þjónustuna á öllum gjaldskyldum svæðum á vegum Reykjavíkurborgar með því að skrá bíl í stæði og velja rétt gjaldsvæði þegar bílnum er lagt og skrá úr stæði þegar ekið er burt.
Skrá P-kort í stæði
Sérmerkt stæði
Sérmerkt stæði, sem stundum eru kölluð P-stæði gefur fólki með hreyfihömlun leyfi fyrir sérmerktu stæði við húsið sitt í Reykjavík.
P-kort
P-kort (stundum nefnt P-merki eða stæðiskort fyrir hreyfihamlaða) gefur fólki með hreyfihömlun leyfi til að leggja í öll sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða til dæmis fyrir utan verslanir og stofnanir.
Sótt er um P-kort á island.is. Byrjað er á að útvega læknisvottorð sem læknir skilar inn rafrænt til sýslumanns. Síðan er valið hvort sækja eigi kortið á valda skrifstofu sýslumanns eða fá það sent heim.
Bílahús
Reykjavíkurborg rekur sjö bílahús í miðborginni. Bílahúsin eru opin alla daga klukkan 7-24, fyrir utan Bergstaði sem er opið allan sólarhringinn. Í bílahúsunum er hægt að leggja til skemmri tíma eða sækja um langtímastæði (áskrift).
Rafhleðslustæði
Má ég leggja rafbíl í rafhleðslustæði þótt ég þurfi ekki að hlaða?
Nei. Rafhleðslustæði eru stæði fyrir bifreiðar til rafhleðslu, það er eingöngu er heimilt að leggja í þessum stæðum á meðan hleðsla fer fram. Þegar slík stæði eru á gjaldskyldu svæði og eru merkt með réttu umferðarmerki, þarf ekki að greiða bæði fyrir stæðið og rafhleðsluna heldur bara fyrir hleðslu.
Hleðslustaur í rafhleðslustæði er bilaður má ég þá leggja?
Nei. Bilaður hleðslustaur gefur ekki sjálfkrafa leyfi til að leggja í stæðið.
Afnotaleyfi
Hvernig sæki ég um afnotaleyfi af gjaldskyldum stæðum í borgarlandi?
- Sækja þarf um leyfi fyrir afnotum af borgarlandi samkvæmt lögreglusamþykkt þar um. Deild afnota og eftirlits á skrifstofu stjórnsýslu og gæða sér um afgreiðslu og útgáfu afnotaleyfa.
- Meira um afnotaleyfi
-
Afnotaleyfi fyrir gjaldskyld bílastæði eru aðeins veitt þegar nauðsynlegt er að loka stæðum tímabundið þannig að þau nýtist ekki sem hefðbundin bílastæði á meðan leyfið er í gildi. Slík leyfi eru almennt veitt vegna framkvæmda, uppsetningar búnaðar, rof á yfirborði eða annarra sambærilegra verkefna.
Ekki er heimilt að fá afnotaleyfi fyrir hefðbundna notkun bílastæðis, svo sem til að leggja ökutæki í gjaldskylt stæði til lengri tíma eða tryggja sér einstök bílastæði til eigin afnota, til dæmis nálægt eða innan framkvæmdasvæðis. Gjaldskyld almenningsstæði eru ætluð öllum notendum og eru ekki leigð út sem langtímastæði.
-
Ef afnotaleyfi felur í sér afnot af gjaldskyldum bílastæðum þarf að loka stæðunum á meðan leyfið er í gildi. Þá ber leyfishafa að hafa samband við Bílastæðasjóð og greiða fyrir afnot stæðanna samkvæmt gildandi gjaldskrá áður en afnot hefjast.
- Gjaldskrá Bílastæðasjóðs