Bílahús Reykjavíkurborgar

Reykjavík rekur sjö bílahús í og við miðborgina. Þau bjóða upp á skammtímastæði, en einnig er hægt að sækja um áskrift. Á þessari síðu eru upplýsingar um staðsetningu bílahúsanna, fjölda stæða, opnunartíma og verð.

Hér er hægt að sækja um áskrift að langtímastæði í bílahúsum Reykjavíkur eða breyta áskrift sem þú ert þegar með.

Upplýsingar um bílahús

Aðgangur fyrir P-korthafa hreyfihamlaðra í bílahús

Regluleg notkun P-korthafa í bílahúsum Reykjavíkurborgar:

Í fyrsta sinn þarf að senda póst á bilahus@reykjavik.is og taka fram:

  • Bílnúmer P-korts og gildistíma.
  • Nafn á bílahúsi og taka fram ef um fleiri en eitt bílahús er að ræða.

P-kortið þarf að vera vel sýnilegt á mælaborði við eftirlit.

Skráning gildir í ár eða í samræmi við gildistíma P-korts.

Leggja í eitt skipti með P-kort í bílahúsum Reykjavíkurborgar:

  • Hringja í síma 4113403 þegar búið er að leggja.
  • Tilkynna að um sé að ræða P-kort og gefa upp bílnúmer. 
  • P-kortið þarf að vera vel sýnilegt á mælaborði við eftirlit.

Skráning gildir í eitt skipti.

Ferlið við umsókn um áskrift í bílahús

  • Sótt er um áskrift (farið er á biðlista)
  • Stæði er úthlutað (þegar stæði losnar og viðkomandi er efstur á biðlista)
  • Áskrifandi greiðir fyrir áskrift í heimabanka
  • Áskrift er stofnuð í aðgangsstýringakerfi
  • Áskrift virkjast

Skilmálar áskrifta í bílahús

Skilmálar

Mánaðarkort í bílahús eru eingöngu fyrir bíla í almennri notkun og hafa skráðar bifreiðar aðgang allan sólarhringinn, þó einungis ein bifreið á áskrifanda hverju sinni.

Ekki er heimilt að geyma bifreiðar, tjaldvagna, kerrur eða önnur ökutæki.

Númerslausar bifreiðar, eftirvagnar og önnur ökutæki sem sæta banni við notkun samkvæmt 75. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 verða tafarlaust fjarlægðar úr bílahúsinu á kostnað eiganda að virtum andmælarétti.

Bílastæðasjóður mun leggja sig fram um að á öllum tímum séu frátekin stæði fyrir mánaðarkorthafa. Ef ekki eru laus stæði eða korthafi kemst ekki inn í húsið vegna bilunar í aðgangsbúnaði, veitir það ekki rétt til að leggja gjaldfrjálst í gjaldskyld stæði í borgarlandi.

Brot á þessum skilmálum leiða til tafarlausrar lokunar áskriftar. Bílastæðasjóður ber ekki ábyrgð á tjóni, innbrotum eða skemmdarverkum á bifreiðum í bílahúsum. Bílastæðahúsin eru vöktuð með öryggismyndavélum og eru lögreglu afhent gögn úr þeim óski hún eftir þeim vegna rannsóknar máls.

Bílastæðasjóður áskilur sér rétt til að breyta skilmálunum ef þurfa þykir og skal upplýsa áskrifanda um allar verulegar breytingar. Áskrifandi skuldbindur sig til að fara eftir þeim skilmálum sem eru í gildi hverju sinni.

Umhverfis- og skipulagssvið notar þær persónugreinanlegu upplýsingar sem settar eru fram vegna mánaðaráskrifta í bílahús borgarinnar, s.s. nafn, kennitölu, símanúmer, bílnúmer og netfang í þeim tilgangi að gera og efna samning við áskrifendur. Rafrænt eftirlit í bílahúsi fer jafnframt fram í öryggis- og eignavörsluskyni. Myndefni er almennt geymt í 30 daga og eytt að því loknu.

Að samningssambandi loknu eru gögn varðveitt í 30 ár og flytjast að þeim tíma liðnum til Þjóðskjalasafns Íslands skv. lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn.

Skilmálar uppfærðir 7. mars 2023

Uppsögn áskriftar

Hafi greiðsluseðill ekki verið greiddur 5 dögum eftir eindaga er aðgangi lokað. Hafi hann enn ekki verið greiddur 15 dögum eftir eindaga er litið svo á að áskriftinni hafi verið sagt upp og öðrum boðið stæðið.

Hægt er að segja upp áskrift með pósti á bilahus@reykjavik.is. Uppsögnin tekur þá gildi frá og með næstu mánaðarmótum eða í lok tímabils sem búið er að greiða fyrir.

Nánari upplýsingar

Mánaðarkorthafar hafa aðgang að húsinu allan sólarhringinn. Aðgangur að húsinu getur verið mismunandi eftir bílahúsum. Bilun í búnaði húsa sem verður til þess að korthafi komist ekki inn veitir ekki rétt til að leggja frítt í gjaldskylt stæði úti á götu.

Greiðendur eða áskrifendur geta hvenær sem er óskað eftir að bílnúmerum sé bætt á áskriftina. Hámark bílnúmera á hvern áskrifenda eru 3. Þegar hámarki er náð þarf að tilgreina bílnúmer sem á að loka fyrir ef bæta á við númeri. Tilkynna þarf breytingar með tölvupósti á bilahus@reykjavik.is með góðum fyrirvara. Ekki er hægt að bæta við númeri í gegnum síma eða aðstoðarhnapp í bílahúsi. 

Reyni áskrifandi að fara út á bílnúmeri sem er ekki hefur verið tilkynnt um þarf hann að greiða fyrir í greiðsluvél sem skammtímanotandi. 

Nauðsynlegt er fyrir áskrifendur að láta vita þegar bifreið er seld til að komast hjá óþægindum þegar nýr eigandi nýtir sér bílahúsið.

Biðlisti eftir áskrift í bílahús

Mjög mismunandi er eftir bílahúsum hve löng bið er eftir áskrift, fer eftir staðsetningu húsanna, fjölda þeirra stæða sem eru í boði og fjölda þeirra sem eru á biðlista. Því miður er ekki hægt að áætla fyrirfram hvenær langtímastæði losna og því erfitt að segja nákvæmlega til um hve biðin er löng. 

Sjá áætlaðan biðtíma per bílahús 

Leiðbeiningar fyrir bílahús

  • Ekið er inn í bílahúsið
  • Erindum sinnt
  • Áður en ekið er að úthliði er greitt í greiðsluvél eða með appi. 

Greitt í greiðsluvél

Þá er sett inn bílnúmerið (snertiskjár, ýtt á "hefja greiðslu"), valin mynd af réttri bílnúmeraplötu og síðan greitt. Einungis er hægt að greiða með greiðslukortum, ekki er hægt að nota seðla eða mynt.

Ef einhverra hluta vegna er búið að greiða en hætt við brottför þarf að fara í greiðsluvél og greiða fyrir þann tíma sem hefur bæst við.

Mikilvægt er, ef greitt er með appi, að greitt sé fyrir rétt bílahús:

Ef greitt er með appi þá skiptir ekki máli hvenær það er gert, það er hægt að gera það á hvaða tímapunkti sem er frá því að ekið er inn í bílahúsið og áður en ekið er að úthliði. Myndavélaálestur við úthliðið sér síðan um að skrá bifreiðina út. Ef notandi nær að stöðva greiðslu í appinu hefur hann ekki valið að greiða fyrir bílahús.

Ekki er hægt að greiða með öðrum öppum en þeim sem eru auglýst í bílahúsunum

Ef hliðið opnast ekki á leiðinni inn:

Bílahúsið er fullt.

Sláin er fyrir bílnúmeri. Gætið að bifreiðum fyrir aftan áður en bifreið er hnikað til, þarf oft ekki nema 20-30 cm. Og oft er nóg að hnika bifreiðinni áfram í stað þess að bakka henni en ef bifreiðin er komin alveg að hliðinu og hlið opnast ekki er líklegri skýring að bílahúsið sé fullt.

Athugið að bílahúsið getur verið fullt þó að sjáist í laus bílastæði, þau bílastæði eru frátekin fyrir áskrifendur.

Ökutæki sem ekki eru með skráningamerki geta ekki notað bílahúsin, aðgangi að húsinu er stýrt með myndavélaálestri. Ekki er heimilt að aka um án skráningamerkja og starfsmenn Bílastæðasjóðs eru því ekki að aðstoða með skráningar í þeim tilvikum sem númeraplötur vantar.

Ef skjár á greiðsluvél virkar ekki:

Oftast er það vegna þess að ýtt er of fast á skjáinn, snertiskjárinn virkar svipað og snertiskjár á símum.

Ef greiðsla í appi virkar ekki:

Hugsanlega hefur myndavél lesið bílnúmer vitlaust á leiðinni inn (á helst við um á þeim dögum þegar er snjókoma o.þ.h.) Á að vera nóg að hringja í 4113403 og fá skráningu leiðrétta en ef það virkar ekki þá þarf að greiða í greiðsluvél.

Ef úthlið virkar ekki:

Algengasta skýringin er að ekki er búið að greiða fyrir stæðið.

Ef valið hefur verið að greiða fyrir vitlaust bílnúmer þá þarf að greiða fyrir eigin bílnúmer og óska síðan eftir endurgreiðslu fyrir röngu greiðsluna á bilahus@reykjavik.is

Í appi þarf velja að greiða fyrir rétt bílahús, úthliðið opnar ekki ef greitt er fyrir annað bílahús eða fyrir gjaldskyld bílastæði við götukanta.

Ef bílahúsið er lokað:

Bílahúsin eru lokuð á nóttunni frá 24:00-7:00 og er engin bilanavakt á þeim tíma. Hægt er eftir lokun fyrir skammtímagesti að greiða með EasyPark og fá þannig Pin númer til að setja í aðgangsskjá sem er við gönguhurðir.

En ef bifreiðin hefur verið vitlaust lesin í myndavélaálestri á leiðinni inn virkar þetta ekki og þá er ekki hægt að nálgast bifreiðina fyrr en 7:00 næsta morgun. 

Þannig að almennt er ekki verið að mæla með þessari leið nema fyrir þá sem læsa bifreiðar inni fyrir mistök. Ökumenn bera sjálfir ábyrgð á kostnaði ef bifreiðar læsast inn í bílahúsum á nóttunni.

Áskrifendur:

Ef fleiri en ein bifreið er skrá á áskrift kemst aðeins ein bifreið inn á áskriftinni í einu, seinni bifreiðin skráist þá alltaf sem skammtímagestur. 

Langtímanotendur geta óskað eftir Pin númeri til að komast inn til að sækja bifreiðar í bílahúsið á nóttunni. Senda tölvupóst á bilahus@reykjavik.is.

Gjaldskrá

Upplýsingar um verð fyrir skammtímastæði og mánaðargjöld fyrir langtímastæði í bílahúsum Reykjavíkur.