Afgreiðsla Norðurmiðstöðvar og Vesturmiðstöðvar flytur í Borgartún 12

""

Frá og með þriðjudeginum 27. október verður afgreiðsla Norðurmiðstöðvar og Vesturmiðstöðvar Reykjavíkurborgar til húsa að Borgartúni 12, 105 Reykjavík.

Opnunartími afgreiðslunnar verður klukkan 8:30–16:00 mánudaga til fimmtudaga og klukkan 8:30–14:30 á föstudögum.

Framvísun skilríkja vegna fjárhagsaðstoðar

Ef þú ert umsækjandi um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg og þarft að mæta til að framvísa skilríkjum getur þú valið um að mæta í Borgartún 12, Bíldshöfða 20 eða enn um sinn Álfabakka 10, óháð því hvaða miðstöð annast mál þitt.

Hægt er að framvísa skilríkjum á eftirfarandi stöðum:

  • Norðurmiðstöð og Vesturmiðstöð: Borgartún 12, 105 Reykjavík. Opið klukkan 8:30–16:00 mánudaga til fimmtudaga og klukkan 8:30–14:30 á föstudögum.
  • Austurmiðstöð: Bíldshöfði 20, 110 Reykjavík. Opið klukkan 9:00–15:00 alla virka daga.
  • Suðurmiðstöð: Álfabakki 10, 109 Reykjavík. Opið klukkan 9:00–15:00 alla virka daga.

Ekki er nauðsynlegt að mæta á þá miðstöð sem hefur umsjón með umsókninni. Umsækjendur geta valið þann afgreiðslustað sem hentar þeim best.